Engar hækkanir verða á komugjöldum í heilsugæslu um áramótin. Börn, aldraðir og öryrkjar greiddu engin komugjöld, en almenn komugjöld lækkuðu 1. janúar 2021 úr 700 krónum í 500 krónur og munu því verða óbreytt. Gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu að öðru leyti hækka um 2,5% frá 1. janúar sl. í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Frá og með 1. janúar sl. eykst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í almennum tannlæknakostnaði öryrkja og aldraðra úr 57% í 63% og kostnaður þeirra lækkar að sama skapi.
Frá áramótum hækkar einnig greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækningum vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Hingað til hafa endurgreiðslur þeirra sem áttu rétt á þeim, miðast við gjaldskrá sem ekki hafði verið uppfærð til verðlags frá árinu 2014. Með nýrri gjaldskrá samhliða rammasamningnum sem tók gildi 15. júlí 2021, hækkaði greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði allra sem áttu rétt á endurgreiðslu. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna nauðsynlegra tannlækninga aldraðra og öryrkja hefur numið 80% en 50% hjá öðrum. Frá og með 1. janúar hækkar greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hjá síðarnefnda hópnum í 80% til jafns við lífeyrisþega.
Þá hafa Sjúkratryggingum Íslands verið veittar auknar heimildir til styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum fyrir fötluð börn með tvö heimili. Markmiðið er að gera heimilin jafnsett þannig að börnin eigi hjálpartækin vís á báðum stöðum.
Áður tóku styrkirnir til kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum. Nú er einnig heimilt að veita styrki til kaupa á sérstökum vinnustólum og sessum. Þann 1. júlí sl. hækkuðu fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum umtalsvert þegar styrkirnir voru færðir upp til verðlags en það hafði ekki verið gert frá árinu 2008.