Alexander Magnússon og Haukur Hákon Loftsson voru fengnir til að taka þátt í samstarfsverkefni ÖBÍ og Strætó bs. til að kanna möguleika fatlaðs fólks til að nota almenningssamgöngur. Nú hafa þeir skilað af sér niðurstöðum sem gefa til kynna að strætó geti verið raunhæfur ferðamáti fyrir fatlað fólk. Það megi þó bæta strætisvagnana, sérstaklega varðandi festingar, en aðgengi á biðstöðvum er víða óviðunandi.
Niðurstöður má lesa í lokaskýrslu verkefnisins á PDF eða hlusta á skýrsluna með talgervli (ReadSpeaker) hér