„Kærleikskúla. Þetta er fallegt orð og ég trúi varla að hægt sé að fá gildishlaðnari viðurkenningu,“ sagði Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs Íþróttasambands fatlaðra á Íslandi, sem í dag hlaut Kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Kærleikskúlan var afhent við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum en fjölmargir gestir hlýddu á kórsöng og jólalög í flutningi Bjöllukórsins. Eliza Reid forsetafrú afhenti Önnu Karólínu viðurkenninguna.
Anna Karólína þakkaði Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra fyrir „einstakt samstarf í gegnum árin. Þar er fólk sem vinnur með hjartanu og á mikið hrós skilið. Verkefni þeirra eru unnin bak við tjöldin en eiga skilið sviðsljósið alla daga. Börnin sem hafa sótt og sækja þar þjónustu og hafa fengið tækifæri til sumardvalar í Reykjadal eru sannarlega í góðum og kærleiksríkum höndum. Ef ég fengi að ráða, væruð það þið sem væruð að taka á móti Kærleikskúlunni 2018,“ sagði Anna Karólína þegar hún tók við viðurkenningunni og bætti við: „Ég vil ítreka að mjög margir eiga hlut í þessari kúlu með mér. All það góða fólk sem tengist starfi ÍF og Special Olympics á Íslandi og ekki síst þeir sem ahfa tekið við keflinu og aðstoðað við ný verkefni. Í þeim hópi er fólk sem aldrei hefur tengst starfi ÍF en er tilbúið að leggja lóð á vogarskálar til að marka ný spor og hefur trú að allt sé hægt.“
Þetta er í sextánda sinn sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur frá sér Kærleikskúluna en allur ágóði af sölu hennar rennur til sumar – og helgarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal.
Kærleikskúla ársins er eftir Elínu Hansdóttur og ber heitið Terrella. Á hverju ári er valinn sérstakur handhafi kærleikskúlunnar sem fær hana í viðurkenningarskyni fyrir störf sín í þágu fatlaðra í samfélaginu.