![„Fatlað fólk á rétt á menntun á öllum skólastigum með viðeigandi aðlögun og án aðgreiningar.“ Úr Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (4)](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/02/„Fatlad-folk-a-rett-a-menntun-a-ollum-skolastigum-med-videigandi-adlogun-og-an-adgreiningar.-Ur-Samningi-Sameinudu-thjodanna-um-rettindi-fatlads-folks-4.png)
Stuðningsúrræði voru til umræðu á málþinginu Ryðjum menntabrautina sem ÖBÍ réttindasamtök stóðu fyrir á Nauthól í dag. Þar sögðu fulltrúar menntastofnana frá þeim úrræðum sem nemendum standa til boða og nemendur sögðu frá eigin reynslu.
Málþingið fjallaði um mikilvægi stuðningsúrræða í námi og fókusinn vará nemendur í efri bekkjum framhaldsskóla og háskólanema með ósýnilegar fatlanir sem þurfa á stuðningsúrræðum að halda, þ.e hvaða úrræði eru í boði og hvernig gangi fyrir nemendur að sækja þessa þjónustu og halda henni út námstímann.
Dagskrá
- Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra flytur opnunarávarp
- Hrafnhildur V. Kjartansdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands
- Hildur Katrín Rafnsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Háskólanum í Reykjavík.
- Gígja Baldursdóttir sérkennari hjá Hringsjá
- Jónas Eyberg útskriftarnemandi frá Hringsjá
- Brynhildur Arthúrsdóttir formaður LAUF
- Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir nemandi í menntavísindum og heilsueflingu við University of Florida
- Anna Kristín Jensdóttir náms- og starfsráðgjafi stofnandi RéttindaRonju
- Jóhanna Halldórsdóttir hjá Gigtarfélaginu um reynslu af LHÍ
Hér má horfa á upptöku af málþinginu: