![Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, er meðal frummælenda á málþingi ÖBÍ um reynsluna af greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2018/05/33713249_10216559415197264_7643737937888149504_n-scaled.jpg)
Nýtt kerfi greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustuþjónustu var tekið í notkun 1. maí 2017. Yfirlýst markmið var að lækka kostnað þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu mest. Hámark var sett á kostnað lífeyrisþega og almennra notanda, auk þess sem sjúkra-, iðju- og talþjálfun var bætt inn í kerfið. Margt er þó enn óniðurgreitt, svo sem tannlækningar og sálfræðiþjónusta.