Nú er lögð ríkari áhersla en áður á samvinnu við umsækjanda um þann stuðning sem hann þarf á að halda. Ekki verður lengur stuðst við stigakerfi sem ákvarði fjölda klukkustunda sem viðkomandi á rétt á, heldur verður nú samtal umsækjanda og ráðgjafa um þörf umsækjanda fyrir þjónustu. Þetta nýja fyrirkomulag hefur í för með sér meiri sveigjanleika, sem á að geta mætt stuðningsþörfum umsækjanda betur. Þá er lögð áhersla á að einfalda alla umsýslu varðandi bæði nýjar umsóknir og samþykktar umsóknir með stafrænum lausnum.
Reglurnar eru í samræmi við velferðarstefnu Reykjavíkurborgar sem miðar að því að þjónusta skuli vera einstaklingsmiðuð og heildstæð. Hún á að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf fatlaðs fólks, á heimili og í tómstundum. Samkvæmt henni á að taka tillit til ólíkra þarfa einstaklinga og leggja áherslu á sjálfræði og valdeflingu þeirra, svo þeir geti tekið þátt samfélaginu á eigin forsendum, tekið ákvarðanir og borið ábyrgð í eigin lífi.
Við gerð reglnanna var haft virkt samráð með hagsmunaaðilum, svo sem Öryrkjabandalagi Íslands, Þroskahjálp, Geðhjálp, réttindagæslumönnum fatlaðs fólks og aðgengisnefnd í málefnum fatlaðs fólks.
Nýju reglurnar taka mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þar sem segir að skapa eigi fötluðu fólki skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum, og eru jafnframt í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs segir í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar að: „Það er afar mikilvægt að við höfum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi. Lögfesting hans ætti að vera í forgangi hjá íslenskum stjórnvöldum,“
Nýju reglurnar taka gildi 1. febrúar 2022. Næstu mánuðir fara því í að undirbúa innleiðingu þeirra.
Á sama fundi borgarráðs voru jafnframt samþykktar nýjar reglur um stuðningsþjónustu sem miða að eldri borgurum. Samhliða þeirri samþykkt var fjárheimild velferðarsviðs aukin um 36 milljónir króna og verður fjárveitingin nýtt í þróunarverkefni um stuðning við einstaklinga með heilabilun. Jafnframt voru samþykktar nýjar reglur um beingreiðslusamninga og breytingar á reglum um félagslegt leiguhúsnæði. Allar breytingarnar eru í samræmi við velferðarstefnu Reykjavíkurborgar.