Málefnahópur ÖBÍ um atvinnu- og menntamál bauð til málþingsins „Vannýttur mannauður“ á Grand hótel 8. september síðastliðinn. Þar var fjallað um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu. Skortur á hlutastörfum á vinnumarkaði og ýmsir þættir í frumkvöðlaumhverfinu hamla því að fólki með skerta starfsgetu sé gert kleift að nýta menntun sína og hæfileika. Á málþinginu var fjallað um nýsköpun og frumkvöðlastarf meðal öryrkja, hvernig mæta megi einstaklingsbundnum þörfum og óskum fólks á vinnumarkaði og reynslusögur út atvinnulífinu.
Upptaka af málþinginu er aðgengileg hér.
Dagskrá málþingsins:
13:00 – 13:10 Ávarp: Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ
13:10 – 13:15 Fundarstjóri; Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar
13:15 – 13:35 Sylviane Pétursson-Lecoultre, iðjuþjálfi í Hlutverkasetri: Að vinna – mannréttindi eða frekja?
13:35 – 13:55 Guðrún Sæmundsdóttir, frumkvöðull og öryrki: Nýsköpun – megum við vera með?
13:55 – 14:15 Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands: Þjónusta í þágu frumkvöðla og fyrirtækja; Þarfir frumkvöðla með skerta starfsorku
14:15 – 14:45 Kaffihlé
14:45 – 15:05 Ragnheiður Hergeirsdóttir, verkefnisstjóri atvinnumála fatlaðs fólks hjá Vinnumálastofnun: „Hvernig mætum við einstaklingsbundnum þörfum og óskum?“
15:05 – 15:35 Reynslusögur úr atvinnulífinu: Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og Kristjana Þórey Ólafsdóttir, sölumaður
15:35 – 16:20 Pallborðsumræður.
16:20 – 16:30 Lokaorð: Ellen Calmon, formaður ÖBÍ
Málefnahóp ÖBÍ um atvinnu- og menntamál skipa: Hjördís Anna Haraldsdóttir (Félag heyrnarlausra), María Hauksdóttir (Blindrafélagið), Elín Hoe Hinriksdóttir (ADHD samtökin), Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir (Sjálfsbjörg), Snævar Ívarsson (Félag lesblindra), Sylviane Pétursson-Lecoultre (Geðhjálp) og Guðrún Sæmundsdóttir (ME félagið). Starfsmaður hópsins er Þorbera Fjölnisdóttir.