Umsóknarfrestur til þessara verkefna er til 30. nóvember og niðurstöður um úthlutun fjár til verkefna ætti að liggja fyrir í janúar á næsta ári. Innan við tíu íslensk félagasamtök eru virk í alþjóðlegu starfi á þessum sviðum en utanríkisráðuneytið hefur kallað eftir þátttöku fleiri samstarfsaðila, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulífið.
Til þróunarsamvinnuverkefna er heimilt að veita styrki til sama verkefnis að hámarki í fjögur ár og styrkupphæðir til slíkra verkefna geta numið allt að 80% heildarkostnaðar. Til mannúðarverkefna eru framlög veitt í samræmi við alþjóðleg neyðarköll og í þeim tilvikum getur styrkupphæð numið allt að 95% heildarkostnaðar.
Ítarlegar upplýsingar um framlögin, mat á umsóknum, styrkhæfni félagasamtaka og önnur atriði sem fram þurfa að koma þegar sótt um styrkina er að finna á vef utanríkisráðuneytisins undir flokknum „Samstarf við borgarasamtök“.
Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti þriggja manna matshóps sem skipaður er tveimur óháðum sérfræðingum á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar, eftir því sem við á, og einum fulltrúa utanríkisráðuneytisins.