SÍBS hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum í aðildarfélögu Öryrkjabandalagsins sama afslátt af Reykjalundarnámskeiðum SÍBS og félagsmönnum í SÍBS sem er 3.000 kr. á námskeið.
Eftirfarandi námskeið fara af stað nú í apríl:
- HAM við þunglyndi og kvíða hefst mánudaginn 4. apríl. Farið yfir einkenni og kynntar leiðir til að takast á við þunglyndi og kvíða.
- Betra líf án tóbaks hefst mánudaginn 4. apríl. Fjallað um ávinning af því að segja skilið við tóbak, gerðar mælingar á fráblæstri og rætt um bjargráð við fráhvarfseinkennum.
- Núvitund – HAM eftirfylgd hefst þriðjudaginn 5. apríl. Fyrir þá sem hafa lokið HAM grunnnámskeiði en núvitund hefur gefið góða raun í að viðhalda bata.
- Minni skipulag og tímastjórnun hefst miðvikudaginn 6. apríl. Hvernig má bæta tímastjórnun, minni og skipulag og læra aðferðir til að takast á við gleymsku í daglegu lífi.
Reykjalundarnámskeið SÍBS eru aðlöguð útgáfa af námskeiðum sem notuð eru í endurhæfingu á Reykjalundi. Námskeiðin eru kennd af okkar færustu sérfræðingum og þú getur treyst faglegu innihaldi þeirra.