Hér að neðan má finna fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar:
Reykjavík Dance Festival fer fram dagana 20. – 23. Nóvember næstkomandi. Dagskrána má finna hér: www.reykjavikdancefestival.is
Í fjóra daga er dansinn okkar, borgin er okkar, með allar sínar raddir, líkama og samfélög.
Í fjóra daga tökum við yfir borgina með dans og kóreógrafíu, verkum eftir innlenda og alþjóðlega listamenn.
Í fjóra daga sköpum við danshátíð sem er byggð á von, ást og umhyggju. Sýningar, viðburðir, partý, hangs, umræður, fyrirlestrar og fleira.
Eins og áður segir fá félagsmenn aðildarfélaga ÖBÍ næstum helmings afslátt af sýningum hátíðarinnar. Athugið að afslátturinn er ekki í boði á sýningarnar Spills eða Fegurð í mannlegri sambúð.
Það þýðir að miðar á sýningar kosta 1.500 krónur í stað 2.900 króna.
Hægt er að virkja afsláttinn með því að slá inn RDF2019fagfelag inn í miðasölukerfi tix.is
Ef fólk er með NPA aðstoðafólk fær viðkomandi aðstoðamanneskja frítt á viðburðina. Hringja þarf í tix.is í síma 5513800