Í frétt á vef RÚV er sagt að upplýsingafundir Almannavarna hafi strax í upphafi verið túlkaðir á táknmál, og hafi það mælst vel fyrir já döff fólki. Á sama tíma var aðal kvöldfréttatími RÚV túlkaður á táknmál, meðan faraldurinn geisaði hvað mest. Könnun sem Félag heyrnarlausra gerði að beiðni RÚV leiddi meðal annars í ljós að flest þeirra sem tala táknmál kjósa að fylgjast með táknmálstúlkuðum fréttum í sjónvarpi og á vef.
Á sama tíma lýkur 40 ára sögu táknmálsfrétta, en fréttir á táknmáli hafa verið fluttar á RÚV í sérstökum dagskrárlið frá árinu 1980.