Alþjóðadagur fatlaðs fólks
”Á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember vörpum við fjólubláu út í umhverfið og afhendum Hvatningarverðlaun
UM 3. DES
Á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember ár hvert er kastljósinu beint að réttindabaráttu fatlaðs fólks og mikilvægu framlagi þess breiða hóps í samfélaginu.
Fatlað fólk er um 15 prósent mannkyns samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, yfir milljarður á heimsvísu – og um 57.000 manns hér á landi.
FJÓLUBLÁR
Vörpum fjólubláu út í umhverfið og höldum daginn hátíðlegan hvort sem það er með því að lýsa upp húsnæði, klæðast fjólubláu eða birta fjólubláa fleti á samfélagsmiðlum.
Markmiðið er upplýst samfélag – ekki aðeins þennan dag heldur alla daga, samfélag þar sem fatlað fólk nýtur verðskuldaðrar virðingar og sjálfsagðra réttinda.
HVETJUM …
Í tilefni dagsins afhendum við Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka. Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. Markmiðið er alltaf líf til jafns við aðra. Forseti Íslands er verndari verðlaunanna.