- This event has passed.
Okkar líf – okkar sýn : hugmyndafundur ungs fólks
05.11.2022 @ 12:00 - 15:00
Hugmyndafundur ungs fólks fer fram á Grand Hotel laugardaginn 5. nóvember nk. frá kl. 12:00 til 15:00.
Fyrir hverja?
Fötluð börn, þ.m.t. börn með ADHD, einhverfu, gigt og sykursýki svo dæmi séu tekin, systkini þeirra og börn sem eiga fatlaða foreldra. Aldur þátttakenda 13-18 ár.
Umræðuefni fundarins verður:
Hvað er gott og hverju vilt þú breyta í sambandi við skólakerfið, tómstundir, íþróttir, aðgengi, námsefni, viðhorf o.s.frv.
- Markmiðið er að hlusta á krakkana, hugmyndir þeirra og skoðanir og aðstoða þau við að koma ábendingum á framfæri.
- Boðið verður upp á hádegisverð og Emmsje Gauti verður með tónlistaratriði
Málefnahópur ÖBÍ um málefni barna stendur fyrir fundinum. Það er frítt á viðburðinn og komið verður til móts við ferðakostnað ungmenna af landsbyggðinni.
Skráning fer fram HÉR Nánari upplýsingar veitir Andrea Valgeirsdóttir, starfsmaður málefnahóps ÖBÍ um málefni barna. Netfang: andrea@obi.is, sími: 530 6700