Nefndasvið Alþingis
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
Reykjavík, 2. febrúar 2022
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) lagði fram umsögn um frumvarpið þegar drög að því lágu fyrir haustið 2020.
Breytingar hafa ekki verið gerðar á þeim greinum frumvarpins sem umsögn ÖBÍ tók til, nema að í 206. gr. hefur eftirfarandi málsgrein bæst við: „Flugrekendur skulu veita einstaklingum með fötlun eða hreyfihömlun þá aðstoð sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur.”
Afstaða ÖBÍ um frumvarpið sem fram kemur í umsögn frá 16. nóvember 2020 stendur því enn.
[Meðfylgandi er:] Umsögn ÖBÍ um frumvarp til laga um loftferðir (2020)
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
formaður ÖBÍ