Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að bæta kjör örorkulífeyrisþega með því að hafa áhrif á fjárlagagerð ríkisins fyrir árið 2018 með eftirfarandi hætti:
- Hækka óskertan lífeyri almannatrygginga í 390.000 kr. fyrir skatt (framfærslu- viðmið án heimilisuppbótar).
- Afnema krónu-á-móti-krónu skerðingu sérstakrar framfærsluppbótar með því að fella bótaflokkinn inn í tekjutrygginguna.
- Afnema tekjuskerðingar í almannatryggingakerfinu.
- Hækka persónuafslátt þannig að ekki verði greiddur skattur af tekjum undir 300.000 kr. á mánuði.
- Setja lög til að koma í veg fyrir víxlverkun skerðinga á milli greiðslna úr lífeyrissjóðum og úr almannatryggingakerfinu.