Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að:
- Auka atvinnutækifæri fatlaðs fólks og fólks með skerta starfsgetu þannig að hlutastörf við hæfi verði í boði.
- Innleiða hvatningakerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir til að ráða starfsfólk með skerta starfsgetu. Tryggt verði að viðeigandi hjálpartæki séu fyrir hendi.
- Stofna opinberan lánasjóð fyrir fatlað fólk og örorkulífeyrisþega til að fjármagna kostnað til atvinnuuppbyggingar sem gæti stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku þeirra.
- Jafna tækifæri fatlaðs fólks til náms og tryggja að nemendur með sérþarfir fái þá lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á innan skólakerfisins.
- Auka námsframboð fyrir eldri nemendur með sérþarfir.