Öryrkjabandalag Íslands var stofnað, þann 5. maí 1961. Á þeim rúmu sextíu árum sem liðin eru hafa þúsundir einstaklinga komið að baráttunni fyrir mannréttindum og viðurkenningunni á því að við erum og verðum allskonar.
Saga ÖBÍ
Eitt samfélag fyrir alla - Saga ÖBÍ
Heimildarmynd
Árið 2011 þegar 50 ár voru liðin frá stofnun Öryrkjabandalags Íslands var gerð heimildarmynd um sögu þess. Í myndinni er stiklað á stóru í viðburðaríkri sögu bandalagsins með frásögnum fjölda fólks sem lagt hefur baráttunni lið frá upphafi.
Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson. Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir ÖBÍ. Myndin var gefin út í táknmálsútgáfu, með íslenskum texta, án tónlistar og með enskum texta (english subtitle).
Bók um sögu ÖBÍ
Í Sögu Öryrkjabandalags Íslands 1961 – 2011, Eitt samfélag fyrir alla, er greint frá þróun og uppbyggingu bandalagsins í hálfa öld og öllu því fjölbreytta starfi sem bandalagið hefur staðið að í samvinnu við aðildarfélögin. Í máli og myndum greinir höfundurinn, Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðingur, frá þrotlausri baráttu fatlaðs fólks, starfsfólks bandalagsins og annarra velunnara fatlaðra fyrir bættum kjörum og auknum möguleikum til þátttöku í samfélaginu.
Bókina er hægt að nálgast á því formi sem hentar best á skrifstofu ÖBÍ, Sigtúni 42; harðspjaldabók, stafrænan texta án myndefnis og PDF. Pantanir sendist á netfangið obi@obi.is eða í síma 530-6700
Fréttarit ÖBÍ 1988-2018
Menning og saga ÖBÍ er einnig varðveitt á Landsbókasafni – Háskólabókasafni. Hér er átt við öll útgefin frétta- og tímarit bandalagsins á þrjátíu ára tímabili. Öll tölublöðin eru aðgengileg á timarit.is. Sjá hér: Fréttabréf Öryrkjabandalagsins (1988- 2001) og Tímarit ÖBÍ (2002-2018)
Fyrsta stjórn ÖBÍ
Myndatexti: Fyrsta stjórn Öryrkjabandalags Íslands og framkvæmdastjóri bandalagsins árið 1961. Frá vinstri: Andrés Gestsson, Blindrafélagið, Einar Eysteinsson, Blindravinafélagið, Sveinbjörn Finnsson, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Oddur Ólafsson, formaður SÍBS og fyrsti formaður ÖBÍ, Sigríður Ingimarsdóttir, Styrktarfélag vangefinna, Zophanías Benediktsson, Sjálfsbjörg, Guðmundur Löve, fyrsti framkvæmdastjóri ÖBÍ.
Vörðurnar
Bandalagið hefur verið stefnumótandi í réttindamálum fatlaðs fólks og frumkvöðull innan málaflokksins í áratugi. Margt hefur gerst á langri leið og sigrar unnist. Kíktu á það helsta hér.