Skip to main content

Ráðgjöf

Einstaklingsráðgjöf ÖBÍ

Á skrifstofu ÖBÍ býðst fötluðu fólki og aðstandendum þeirra frí ráðgjöf félagsráðgjafa og lögfræðinga um réttindamál. Ekki er um fasta viðtalstíma að ræða. Ráðgjafar okkar forgangsraða viðtölum og úthluta tímum ef ekki er hægt að leysa mál í gegnum síma eða tölvupóst.

Ráðgjafar hjá ÖBÍ eru með símavakt á fimmtudögum frá kl. 13 til 15 í síma 530 6710. Athugið að vegna sumarleyfa falla niður þrír símatímar. Næsti símatími ráðgjafa er 8. ágúst 2024. Netfang ráðgjafa ÖBÍ er: radgjof@obi.is 

Hægt er að hringja inn og fá ráðgjöf varðandi málefni réttindi örorku- og endurhæfingarlífeyristaka. Ekki er ekki áætlaður lengri tími fyrir hvert símtal en 10-15 mínútur.  Fyrir flóknari mál þarf að bóka tíma hjá ráðgjafa í gegnum móttökuna í síma 530 6700 eða með tölvupósti: mottaka@obi.is

Aðrir aðilar sem veita ráðgjöf

Réttindagæslumenn fatlaðs fólks skulu fylgjast með högum fatlaðs fólks á sínu svæði og vera því innan handar við réttindagæslu hvers konar. Hvort sem er vegna meðferðar einkafjármuna, þjónustu eða vegna persónulegra réttindi eða einkamála.

Sveitarfélögin bjóða upp á félagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál.

Þegar brotið er á réttindum fatlaðs fólks og málið er fordæmisgefandi fyrir heildina eða stóra hópa fólks er kannað hvort lagt skuli í málaferli. Stjórn ÖBÍ tekur ákvörðun þar um.