Lífeyrisgreiðslur hækka sérstaklega til um 8.000 einstaklinga.
Um áramótin tók gildi lagabreyting þar sem breyting verður á útreikningi sérstakrar uppbótar til framfærslu. Í stað þess að öll tekjutrygging komi til frádráttar við þann útreikning, mun nú 95% hennar dragast frá. Þetta gagnast þeim sem engar aðrar tekjur hafa.
Fjárhæðir verða eftirfarandi fyrir árið 2021:
Örorkulífeyrir verður 49.840 að hámarki á mánuði.
Tekjutrygging verður 159.604 að hámarki á mánuði.
Aldurstengd örorkuppbót verður 49.840 (100%) að hámarki á mánuði.
Heimilisuppbót verður 53.948 að hámarki á mánuði.
Lágmarks framfærslutrygging (vegna sérstakrar uppbótar til framfærslu) verður 333.258 kr. á mánuði hjá þeim sem fá greidda heimilisuppbót, 265.044 kr. annars.
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga eykst.
Frá og með 1. janúar mun greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar öryrkja hækka úr 50% í 57%. Stefnt er að því að hlutdeild sjúkratrygginga í þessum kostnaði verði orðin 75% árið 2024.
Hækkun tekju- og eignamarka vegna sérstaks húsnæðisstuðnings.
Félagsmálaráðuneytið hefur uppfært tekju- og eignaviðmið í leiðbeiningum til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings. Tekju- og eignamörk hækka um 3,6% á milli ára og eru nýju tekjumörkin eftirfarandi:
Fjöldi heimilis- manna |
Neðri tekjumörk á ári |
Efri tekjumörk á ári |
Neðri tekjumörk á mánuði |
Efri tekjumörk á mánuði |
1 |
4.165.730 |
5.207.163 |
347.144 |
433.931 |
2 |
5.509.514 |
6.886.893 |
459.126 |
573.908 |
3 |
6.450.163 |
8.062.704 |
537.514 |
671.892 |
4 eða fleiri |
6.987.676 |
8.734.595 |
582.307 |
727.883 |
Eignamörk hækka úr 5.971.000 kr. í 6.186.000 kr. á milli ára.
Félagsmálaráðuneytið beinir þeim tilmælum til sveitarfélaga að taka mið af þessari hækkun við endurskoðun reglna þeirra um sérstakan húsnæðisstuðning.