![Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar var viðstaddur þegar ráðherra ritaði nafn sitt undir reglugerðina.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2020/06/bergur-thorri-benjaminsson-formadur-sjalfsbjargar-og-asmundur-einar-dadason-felags-og-barnamalaradherra-vid-undirritun-a-reglugerdinni.jpg)
Eins og komið hefur fram í fréttum gat verið um umtalsverðar upphæðir að ræða fyrir þá sem höfðu gengið frá pöntun á nýjum bíl, en ekki fengið afhentan. Fyrir suma gat upphæðin verið á aðra milljón.
Ráðherra hefur nú ákveðið að breyta reglugerð um styrki vegna kaupa á sérútbúnum bifreiðum. Hámarks fjárhæð styrks var áður 5 milljónir, en verður 6 milljónir eftir breytingu. Ekki kemur fram í frétt Félagsmálaráðuneytisins hvort um tímabundnar ráðstafanir er að ræða, eða til frambúðar. Reglugerðin sjálf hefur ekki verið birt.