Samstaða um bætt lífskjör
Samtök launafólks standa með Öryrkjabandalagi Íslands
Fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er að útrýma fátækt í allri sinni mynd, allstaðar. Við getum ekki kallað samfélagið okkar velferðarsamfélag nema allir njóti mannsæmandi lífs og enginn sé skilinn eftir í í fátækt. Það á ekki síst við á tímum endurreisnar sem nú fara í hönd að loknum Covid-19 faraldrinum. Það er hagur allra að bæta kjör öryrkja og sjá til þess að enginn sé dæmdur til fátæktar þó starfsgeta láti undan. Að festast í fátæktargildru hefur áhrif á starfsgetu til framtíðar. Það er dýru verði keypt, ekki bara fyrir einstaklinga heldur fyrir samfélagið allt að svipta fólk virðingu og getu til athafna.
Lítið svigrúm er fyrir fatlað og langveikt fólk á íslenskum vinnumarkaði. Til að sem flestir geti notið sín á vinnumarkaði þarf þröskuldurinn að vera lægri. Öryrkjum má ekki hefnast fyrir það fjárhagslega að reyna getu sína í starfi þannig að þeir verði jafnvel verr settir eftir.
Heildarsamtök launafólks og Öryrkjabandalag Íslands standa saman að því að krefjast þess að hagur öryrkja verði bættur, öllum til hagsbóta.
Kröfurnar eru skýrar:
-
-
Lágmarksframfærsla öryrkja verði hækkuð þannig að fólki sé gert kleift að lifa mannsæmandi lífi.
-
Skerðingar verði endurskoðaðar þannig að þær standi ekki í vegi fyrir þátttöku á vinnumarkaði, hvort sem er að hluta eða tímabundið og að dregið verði úr tekjuskerðingum vegna lífeyristekna.
-
Störf með viðeigandi aðlögun og sveigjanlegum vinnutíma verði tryggð fyrir fólk með skerta starfsgetu.
-
19. maí 2020
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ sagði í ávarpi sínu að hér væri söguleg stund, aldrei áður hefðu samtök launþega lýst yfir stuðningi við Öryrkjabandalagið.
Yfirlýsingin var undirrituð á blaðamannfundi í húsnæði Öryrkjabandalagsins í dag, 19. maí 2020.