![Bára Brynjólfsdóttir og Jón Þór Víglundsson](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2019/07/bara-og-jonthor.png)
Bára Brynjólfsdóttir lögfræðingur hefur hafið störf hjá Öryrkjabandalaginu. Bára mun veita ráðgjöf, upplýsingar og lögfræðilega aðstoð í ýmsum hagsmuna og réttindamálum fatlaðs fólks. Bára lagði stund á meistaranám í Alþjóða- og Evrópurétti með áherslu á Alþjóðlega- og Evrópska mannréttindavernd við Evrópustofnun háskólans í Saarland í Þýskalandi.
Jón Þór Víglundsson hefur hafið störf sem fjölmiðlafulltrúi hjá Öryrkjabandalaginu. Jón Þór hefur fjölbreytta reynslu af ýmsum störfum við fjölmiðla, sem og í eigin rekstri. Hann mun m.a. sjá um skrif frétta á heimasíðu Öryrkjabandalagsins og samskipti við fjölmiðla.