Í meira en áratug hafa íslensk stjórnvöld viljað leggja niður núverandi örorkumat og taka upp svokallað starfsgetumat. Á meðan stjórnvöld vinna undirbúningsvinnuna bíða öryrkjar eftir kjarabótum þannig að þeir geti framfleytt sér og sínum á viðunandi hátt og tekið þátt í samfélaginu eins og aðrir. Það er alveg ljóst að stjórnvöld eiga mikið starf óunnið áður en starfsgetumat kemur til framkvæmda og í mínum huga er ég ekki sannfærður um að stjórnvöldum takist ætlunarverk sitt, en ef þeim tekst það mun það taka nokkur ár. En hvað eiga öryrkjar að gera á meðan til að framfleyta sér?
Örorkulífeyrir frá Tryggingastofnun ríkisins er í dag rúmar 247 þúsund kr. fyrir skatt, fyrir utan heimilisuppbót sem aðeins 30% örorkulífeyrisþega fá. Þegar búið er að greiða skatt af 247 þúsundum eru eftir til ráðstöfunar rúmar 212 þúsund kr. Það er öllum ljóst að þessi lága upphæð hrekkur skammt í heimilisbókhaldinu og illmögulegt er að ná endum saman og þurfa örorkulífeyrisþegar að lifa á loftinu seinni hluta hvers mánaðar.
1. janúar síðastliðinn fengu örorkulífeyrisþegar að jafnaði innan við 8 þúsund kr. eftir skatta í hækkun á lífeyri fyrir árið 2019 og ljóst er að verðbólgan á þessu ári mun éta hækkunina upp og því verður engin raunhækkun þetta árið. Þetta er ekki ný staðreynd fyrir okkur öryrkjana.
Allir fá mun meiri hækkun en við!
Í mörg ár hefur örorkulífeyrir verið á pari við atvinnuleysisbætur en frá og með 1. janúar sl. munar rúmum 32 þúsund kr. á mánaðargreiðslum. Við hjá Öryrkjabandalaginu höfum þráspurt stjórnvöld hverju þetta sætir en fáum engin skýr svör og menn yppta öxlum og segja að þetta hafi bara gerst, eins og stjórnvöld hafi ekki komið nálægt breytingunum.
Sýnið okkur sanngirni og virðingu!
Stjórnvöld geta ekki kennt forsvarsmönnum Öryrkjabandalagsins um þá kjaragliðnun sem lífeyrisþegar hafa þurft að taka á sig síðastliðinn áratug. Stjórnmálamenn og -konur bera alla ábyrgð á slæmum kjörum öryrkja og það er löngu orðið tímabært að losa fatlað og veikt fólk út úr fátæktargildrum t.d. með því að losa okkur undan krónu-á-móti-krónu-skerðingunni.
Svona skerðingar þekkjast ekki í nágrannalöndum okkar og allir stjórnmálaflokkar á Alþingi hafa sagt að það eigi að afnema þetta óréttlæti strax en ekkert gerist. Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er að hækka atvinnuleysisbætur um rúmar 42 þúsund kr. og skilja aldraða og öryrkja eftir með einungis 3,6% hækkun sem étin verður upp í verðbólgu.