![Brynja-hússjóður tekur ekki við umsóknum frá og með deginum í dag. 600 umsækjendur eru á biðlista.Mynd: Brynja-hússjóður](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2018/10/img_0367.jpg)
Fréttatilkynning frá Brynju – hússjóði:
Vegna gríðarlegrar fjölgunar umsókna hjá Brynju – Hússjóði ÖBÍ er því miður ekki unnt að taka við nýjum umsóknum. Nú er svo komið að 600 umsækjendur eru á biðlista eftir leiguíbúðum og útilokað að nýjar umsóknir gætu komið til afgreiðslu á næstu árum.
Með móttöku nýrra umsókna væri einungis verið að viðhalda óraunhæfum væntingum og beina athygli frá því neyðarástandi sem uppi er í húsnæðismálum öryrkja.
Stjórn Brynju Hússjóðs þykir miður hvernig komið er og væntir þess að stjórnvöld bregðist við af þeirri ábyrgð sem þeim ber.