Að mikill meirihluti fólks ætlar að kjósa framboð sem vill bæta þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu.
Að yfirgnæfandi meirihluti fólks telur að börn með fatlanir og sérþarfir eigi að eiga sömu tækifæri til að njóta tómstundastarfs og önnur börn.
Að uppundir helmingur fólks telur að börnum með fatlanir og sérþarfir sé vel sinnt á opinberum leikskólum.
Að áberandi miklu færri telja að hið sama eigi við í opinberum grunnskólum.
Að yfirgnæfandi meirihluti aðspurðra telur að tryggja eigi með lögum að sveitarfélögum verði skylt að veita fötluðu fólki, óháð aldri, akstursþjónustu, svo það geti farið allra sinna ferða.
Þessar niðurstöður eru byggðar á könnun Gallups sem gerð var fyrir Öryrkjabandalag Íslands í mars og apríl 2018.