![Fólk úr ýmsum áttum mætti á pöbbkviss Ungliðahreyfingar ÖBÍ í gærkvöldi.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2017/12/2017-12-19-pub-quiz-unglidahreyfing-1462-scaled.jpg)
Stuð og stemning einkenndu jólapöbbkviss Ungliðahreyfingar ÖBÍ sem haldið var í gærkvöldi. Kvissið var vel sótt og naut fólk samverunnar í skemmdeginu yfir skemmtilegum spurningum. Haukur Bragason samdi spurningarnar og sá um að fólk reyndi verulega á heilafrumurnar á meðan það naut léttra veitinga og notalegrar samveru nú þegar styttist í jólin.