Ingimar Karl Helgason hefur verið ráðinn samskiptastjóri Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ).
Ingimar Karl hefur starfað við fjölmiðla frá árinu 2000. Undanfarin ár hefur hann einkum starfað við ritstjórn, kynningarstörf og ráðgjöf, meðal annars verið ritstjóri Reykjavíkur vikublaðs og Blaðs stéttarfélaganna.
„Ég hef lengi haft brennandi áhuga á baráttumálum Öryrkjabandalagsins og finnst gott að geta lagt mitt lóð á vogarskálarnar. Framundan eru bæði tækifæri sem þarf að grípa og áskoranir sem takast þarf á við. Ég hlakka til að taka þátt í þessari mikilvægu baráttu um leið og ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með ráðningunni,“ er haft eftir Ingimar Karli í tilkynningu frá sambandinu.
Öryrkjabandalag Íslands er hagsmuna- og mannréttindasamtök fatlaðs fólks, langveikra, örorkulífeyrisþega og aðstandenda þeirra. Aðildarfélög ÖBÍ eru 41 talsins og telja þau um 29.000 félagsmenn. Helstu verkefni Ingimars Karls snúa að útgáfumálum, skipulagningu viðburða, samskiptum við fjölmiðla og upplýsingamiðlun hvers konar.
Hagvangur hafði umsjón með ráðningarferlinu en um 50 umsóknir bárust um starfið.