Það er janúar 2018 og fjárlagafrumvarpið hefur verið samþykkt eins og það var lagt fram í september sl. Staðan er þessi:
Lífeyrir almannatrygginga hækkaði um 4,7%
Í krónutölum þýðir 4,7% hækkun að óskertur lífeyrir almannatrygginga hækkaði um rúmar 10 þús. kr. fyrir skatt, eða úr tæpum 228 þús. kr. í rúmar 238 þús. kr. Eftir skatt er hér um að ræða hækkun í kringum 6.700 kr. á mánuði. Þessi hækkun breytir engu fyrir fólk með lágar tekjur, sem í boði ríkisstjórnarinnar, er nú, eins og áður fast í fátækt.
Tekjuskerðingar örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega eru óbreyttar
Félags- og jafnréttismálaráðherra sagði á morgunfundi þann 4. október sl. að „krónu fyrir krónu skerðingin í örorkulífeyrinum er eitthvað sem er hvað mest hamlandi til atvinnuþátttöku og það er alveg ljóst að við eigum að geta gert þarna miklu betur.“ „Krónu á móti krónu“ skerðingin er enn óbreytt og heldur enn stórum hópi lífeyrisþega í fátæktargildru. Frítekjumörk vegna atvinnutekna og fjármagnstekna eru enn þau sömu og þau hafa verið frá árinu 2009.
Skattbyrði lágtekjufólks óbreytt
Skattbyrði lágtekjufólks er enn óbreytt, en eins og fram kemur í nýlegum skýrslum hefur hún aukist verulega síðustu ár.
Rýrari húsnæðisstuðningur
Tekjuviðmið og grunnfjárhæðir húsnæðisbóta eru óbreyttar, sem þýðir að almennar hækkanir launa- og lífeyrisgreiðslna á árinu 2018 rýra húsnæðisbætur til leigjenda. Það sama á við um vaxtabætur.
Greiðsluþátttaka í heilbrigðisþjónustu
Greiðsluþátttaka sjúklinga hvað varðar tannlækna- og sálfræðiþjónustu er enn fyrir utan greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt nýlegri könnun voru 92,5% landsmanna hlynntir því að þessi þjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu.
Útistandandi skuld vegna tannlæknakostnaðar
Gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna endurgreiðslu til lífeyrisþega og aldraðra vegna tannlæknaþjónustu hefur ekki verið uppfærð frá 2004 og margir hafa neitað sér um tannlæknaþjónustu um árabil vegna kostnaðar. Ráðamenn hafa lengi lofað að ganga til samninga við tannlækna og uppfæra gjaldskrá SÍ fyrir tannlækningar og skila lífeyrisþegum þeim endurgreiðslum sem þeir eiga inni. Þau loforð gleymdust í fjárlögum 2018.
Möguleikar til menntunar, skóli án aðgreiningar
Gríðarlega mikilvægt er að allt fatlað fólk hafi sömu möguleika til menntunar og aðrir þar sem menntun stuðlar að virkni og samfélagsþátttöku. Menntun er mikilvægur liður í því að stuðla að samfélagslegu réttlæti og bættum lífsgæðum og kjörum óháð líkamlegu og andlegu atgervi einstaklinga. Jafna þarf tækifæri allra til náms og tryggja að nemendur með sérþarfir fái þá lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á innan skólakerfisins. Auka þarf svo um munar fjármagn í þennan lið ef vel á að vera.
Enn eru nemendur með sérþarfir án þeirrar lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á innan skólakerfisins. Heildarfjármagn til leikskóla og grunnskólastigs lækkaði um 20 m.kr. á milli ára. Fatlað fólk hefur því ekki möguleika á menntun til jafns við aðra.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
NPA samningar eru aðeins 85 talsins. Tugir fatlaðra einstaklinga bíða enn eftir að fá samning. Kvóti er settur á sjálfstætt líf í stað þess að uppfylla raunverulegar þarfir fólks.
Þessi fjárlög viljum við ekki.
Við bindum vonir við að ný ríkisstjórn forgangsraði í þágu mannréttinda, velferðar og mannúðar.
Greinin birtist á Vísi.is 27. október 2017.
Höfundur er formaður Öryrkjabandalags Íslands.