![Ellen Calmon, formaður ÖBÍ og nýr fulltrúi í stjórn EDF.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2017/05/ellen-edf.jpg)
Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, var um liðna helgi kosin í stjórn Evrópusamtaka fatlaðs fólks, European Disability Forum. EDF eru regnhlífasamtök aðildarfélaga fatlaðs fólks, en þing samtakanna var haldið í Madrid um helgina. Á vettvangi EDF vinna fulltrúar úr Evrópu að málefnum fatlaðs fólks.