- This event has passed.
Skipta líf dætra okkar máli? – Mannréttindadagar
10. desember @ 10:00 - 11:00
Mannréttindadögum og alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi líkur þriðjudaginn 10. desember. Af því tilefni ætla ÖBÍ réttindasamtök, UN Women á Íslandi og Kvennaathvarfið að blása til samverustundar í Mannréttindahúsinu.
Fjallað verður um nýútkomna skýrslu Sameinuðu Þjóðanna um fjölgun kvennamorða í heiminum en hér á Íslandi hafa 5 konur verið drepnar það sem af er á árinu 2024, sem er metfjöldi. Einnig verður fræðsla um ofbeldi í nánum samböndum og helstu birtingarmyndir þess.
Framsögukonur eru Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og Ísól Björk Karlsdóttir sérfræðingur hjá Kvennaathvarfinu.
Öll velkomin!