Skip to main content
Málefni barnaMenntamálUmsögn

Námsgögn

By 8. október 2024No Comments

ÖBÍ tekur undir með frumvarpinu og fagnar því að unnið sé að bættu aðgengi að vönduðu náms- og kennslugögnum.

ÖBÍ gerir athugasemd við það að hvergi er talað sérstaklega um námsögn fyrir fötluð börn, einungis um börn af erlendum uppruna. Mikil vöntun er á námsefni fyrir börn með ýmsar skerðingar, svo sem námsefni fyrir blind og lesblind börn svo dæmi séu tekin, en mikilvægt er að svo sé tryggt.

ÖBÍ minnir á að nú stendur til, á þessu haustþingi, að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Ekkert um okkur án okkar. 

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ – réttindasamtaka

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ- réttindasamtaka


Námsgögn
222. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 8. október 2024