Skip to main content
AlmannatryggingarHúsnæðismálKjaramálUmsögn

Skattleysi launatekna undir 450.000 kr. og 450.000 kr. lágmark til framfærslu lífeyrisþega

By 8. október 2024október 9th, 2024No Comments
Tengill á umsögn

ÖBÍ fagnar fram kominni tillögu og tekur undir með flutningsmönnum hennar að lífeyristakar hafa setið eftir við kjarabætur síðustu ára og að nauðsynlegt er að bæta verulega kjör þeirra.

Hækkun húsnæðiskostnaðar kemur verst við tekjulágt fólk sem ver stærstum hluta tekna sinna í húsnæðiskostnað. Samvæmt niðurstöðum rannsóknar Vörðu rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins frá desember 2023 um stöðu fatlaðs fólks býr einungis 8,3% ekki við byrði af húsnæðikostnaði. Hæst hlutfall þeirra sem bera þunga byrði af húsnæðiskostnaði eru einhleypir foreldrar (61,3%).

Niðurstöðurnar sýna að af þeim sem búa við þunga byrði af húsnæðiskostnaði er hlutfallið langhæst meðal þeirra sem búa í leiguhúsnæði á almennum markaði (65,8%). Tæplega helmingur (47,2%) þeirra sem býr í leiguhúsnæði á vegum óhagnaðardrifinna leigusamtaka býr sömuleiðis við þunga byrði og ögn lægra hlutfall þeirra sem búa í leiguhúsnæði hjá sveitarfélagi (42,2%).

Húsnæðiskostnaður hjá þeim sem eru í eigin húsnæði getur einnig verið stórt hlutfall ráðstöfunartekna, sérstaklega afborganir lána og kostnaður vegna viðhalds húsnæðis. Í niðurstöðum ofangreindrar rannsóknar Vörðu kom fram að tæplega helmingur (46,3%) svarenda í eigin húsnæði bjó við þunga byrði af húsnæðiskostnaði. Verðbólga mælist nú 5,4% á ársgrundvelli og hefur lítillega lækkað frá því hún var hæst, en þá hafði hún ekki verið meiri í tæpan áratug. Hækkun verðbólgu kemur verst við lágtekjufólk eins og örorku- og endurhæfingarlífeyristakar og hluti ellilífeyristaka.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að framfærsluþörf lífeyristaka sé almennt jafn mikil og framfærsluþörf vinnandi fólks. Í því sambandi er rétt að árétta að lífeyristakar hafa almennt meiri kostnað vegna heilbrigðisþjónustu, lyfja og annarrar þjónustu en aðrir hópar í samfélaginu.

Í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu eru sett saman tvö þingmál annars vegar um lágmarksframfærslu almannatrygginga og hins vegar um skattleysis launatekna í þeim tilgangi að tryggja að lífeyristakar með fullan lífeyri almannatrygginga fá útborgað 450.000 kr. Það er mat undirritaðrar að það hefði farið betur að halda þessum tveimum þingmálum aðskildum.

Lífeyrisgreiðslur verði 450.000 kr. skerðingarlaust

Í núverandi kerfi geta hámarksgreiðslur til örorku- eða endurhæfingarlífeyristaka verið 381.065 kr. á mánuði eftir skatt og eru greiddar til einstaklinga sem fá greidda 100% aldurstengda örorkuuppbót (fyrsta örorkumat 18-24 ára) og heimilisuppbót auk þess sem þeir eru ekki með neinar aðrar tekjur. Árið 2019 átti þetta við um 9 manns samkvæmt upplýsingum frá TR. Aðrir fá lægra og oft mun lægri greiðslur frá TR. Án heimilisuppbótar2 eru hámarksgreiðslur 323.060 kr. á mánuði.
Þessar greiðslur eru skertar frá fyrstu krónu ef einstaklingur er með einhverjar tekjur annars staðar frá. Framfærsluuppbótin skerðist mest, eða 65% af tekjum fyrir skatt. Aðrir greiðsluflokka skerðast um 9% (örorkulífeyrir og aldurstengd örorkuuppbót), 38,35% (tekjutrygging), og 12,96% (heimilisuppbót). Því til viðbótar er mikið um innbyrðis skerðingar á milli greiðsluflokka auk þess samlagning skerðingarprósentna eykur enn á tekjuskerðingar, samanber dæmið hér fyrir neðan.

Dæmi:

Á sama tíma og tekjutrygging byrjar að skerðast um 38,35% vegna tekna, byrjar heimilisuppbótin (ef hún er til staðar) að skerðast um 12,96% til viðbótar við skerðingarprósentu tekjutryggingar eða samtals um 51,31%.

Ekki er ætlunin að fara djúpt í áhrif tekna eða skerðinga í almannatryggingakerfinu. Nánar er fjallað um tekjuskerðingar í skýrslu Kolbeins Stefánssonar „Lásar gera bara gagn ef þeir eru læstir“ [PDF].

Skattlagning lágra tekna

Í umsögnum ÖBÍ til Alþingis hefur skattlagning lágra tekna, sem ekki duga til framfærslu, verið gagnrýnd ítrekað. Því styður bandalagið þingsályktunartillögur sem fela í sér að lækka skattbyrði lágtekjufólks og leiðrétta þá miklu tilfærslu skattbyrðar frá efstu tekjuhópum til lægri- og milli tekjuhópa, sem átt hefur sér stað um langt skeið. Rannsóknir hafa sýnt að lágtekjufólk hefur borið sífellt þyngri skattbyrði undanfarin ár. Að mati ÖBÍ er mjög mikilvægt er að jafna skattbyrði milli tekjuhópa þannig að hún verði líkari því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum og hlífa lágtekjufólki við skattbyrði.

Síðustu breytingar á skattkerfinu voru kynntar á þann hátt að þær væru í þágu þeirra tekjulægri og myndi létta skattbyrði lágtekju- og millitekjuhópa og því var haldið fram að breytingin muni alls hækka ráðstöfunartekjur þeirra tekjulægstu um rúmlega 120 þúsund krónur á ári. Áhrif skattkerfisbreytinganna fyrir örorkulífeyristaka og aðra með mjög lágar tekjur eru mun minni og hækkar ráðstöfunartekjur þeirra mun minna.

Skattkerfisbreytingarnar hækkuðu ráðstöfunartekjur örorku- og endurhæfingar- lífeyristaka með óskertar örorkugreiðslur (273.024 kr. frá 1.1.2021) aðeins um 6.466 kr. á mánuði eða 77.592 kr. á árinu.

Árið 2024 greiða lífeyristakar tekjuskatt af tekjum yfir 206.245 kr. á mánuði. Einstaklingur með óskertan örorkulífeyrir almannatrygginga með rúm 376 þúsund kr. tekjur á mánuði fyrir skatt greiðir tæpar 54.000 kr. í staðgreiðslu. Hækkun skattleysismarka í 450.000 kr. yrði því umtalsverð breyting, sem myndi auka sérstaklega ráðstöfunartekjur þeirra sem eru á lágum launum á vinnumarkaði eða á lífeyri. Fólki með lágar tekjur munar mikið um þær upphæðir sem það greiðir í skatt. Til samanburðar voru tekjur lægstu tíu prósenta framteljenda skattfrjálsar til ársins 2001. „Þetta átti við um lágmarkslaun á vinnumarkaði þess tíma, meðal lífeyristekjur eftirlaunafólks og tekjur þorra öryrkja. Allir þessir tekjuhópar voru án tekjuskatts, sem hjálpaði þeim verulega við að ná endum saman í framfærslu sinni.“

Lokaorð

ÖBÍ hvetur þingmenn alla sem einn að sameinast um þessa tillögu þannig að fjármunum verði forgangsraðað til að tryggja öllum lífeyrisþegum mannsæmandi framfærslu. Í stað þess að tryggja rétt fatlaðs fólks og fjölskyldna þess til viðunandi lífskjara og til sífellt batnandi lífskilyrða án mismununar vegna fötlunar hefur staðan verið sú að það verður að teljast ávísun á fátækt og jaðarsetningu að missa heilsuna, slasast alvarlega eða vera með meðfæddar skerðingar. Þessu þarf að breyta.

Ekkert um okkur án okkar.

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir,
formaður ÖBÍ

Gunnar Alexander Ólafsson,
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir,
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka


Skattleysi launatekna undir 450.000 kr. og 450.000 kr. lágmark til framfærslu lífeyrisþega
46. mál, þingsályktunartillaga
Umsögn ÖBÍ, 8. október 2024