- This event has passed.
Málþing ADHD samtakanna 2024
11. október @ 10:00 - 16:00
Konur – Vitund og valdefling
ADHD samtökin standa fyrir málþingi um ADHD sem nefnist „Konur – Vitund og valdefling “ . Málþingið fram fer í Jötunheimum, Skátaheimili Víflis í Garðabæ þann 11. október kl. 10:00 – 16:00.
Málþinginu er ætlað að vekja athygli á áskorunum sem konur með ADHD glíma við ásamt því að kynna ýmsar lausnir til að takast á við afleiðingar hennar. Kunnir íslenskir fyrirlesarar halda erindi og umfjöllunarefnin snerta hina ýmsu kima ADHD. Málþingið er frábært tækifæri til að bæta við þekkingu, læra að byggja á styrkleikum og hafa gaman saman.
Málþingið er opið öllum.
Skráning fer fram hér:
https://www.adhd.is/is/malthing-2024
Almennt verð: 9.900-
Félagsmenn 5.900.-
Dagskrá:
10:00 – 10:10 Setning málþings
Gyða Haraldsdóttir varaformaður ADHD samtakanna
10:10 – 10:30 Ávarp
10:30 – 10:50 Afhending Hvatningarverðlauna
10:50 – 11:20 ADHD – konur og refsivist
11:20 – 11:30 KAFFIHLÉ
11:30 – 12:30 ADHD hjá konum: líkamlegir áhættuþættir og sjúkdómar og tengsl við geðraskanir
Unnur Jakobsdóttir Smári sálfræðingur og doktorsnemi
12:30 – 13:30 HÁDEGISHLÉ
13:30 – 14:30 VÁ hvað þetta er gott … var ég búin að taka úr vélinni?
Kynlíf, hvatvísi og heilarugl
Kristín Þórisdóttir kynlífs markþjálfi
14:30 – 14:45 KAFFIHLÉ
14:45 – 15:45 „Gleymdi að borða og borðaði svo allt.“
Hvernig ADHD hefur áhrif á matarvenjur.
Ragga Nagli sálfræðingur og einkaþjálfari
15:45 – 16:00 Samantekt og málþingsslit
Elín H. Hinriksdóttir sérfræðingur ADHD samtakanna
Máþingsstýra er Þórdís Björk Þorfinnsdóttir (Dísa), leikkona, Reykjavíkurdóttir og áhrifavaldur með meiru.