Fjólublátt ljós við barinn, aðgengisviðurkenning UngÖBÍ (ungliðahreyfingar ÖBÍ réttindasamtaka), var afhent í fyrsta sinn í gær við hátíðlega athöfn. Bíó Paradís er handhafi viðurkenningarinnar í ár, en viðurkenningin er afhent þeim sem stuðla að bættu aðgengi fatlaðs fólks að skemmtanalífi á Íslandi.
Eiður Welding, formaður UngÖBÍ, veitti Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradísar, viðurkenninguna, sem er einmitt fjólublátt ljós við barinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Í kjölfar afhendingarinnar var gestum boðið á partísýningu á stórmyndinni Mamma Mia.
Aðgengi að skemmtanalífi, svo sem veitinga- og skemmtistöðum og annarri afþreyingu, er verulega ábótavant á Íslandi en partíið er auðvitað skemmtilegra þegar öll eru með.
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, sagðist ákaflega ánægð með viðurkenninguna. „Ég er komin með harðsperrur í munnvikin því við erum svo glöð yfir þessu.“
Í ávarpi sagði Hrönn frá því að það geti verið fjarskalega erfitt að breyta húsum, kaupa lyftur og gera þau aðgengileg fyrir sem allra flesta. Starfslið Bíó Paradísar hafi fengið aðgengi á heilann og haft sig fram við að gera bíóhúsið sem aðgengilegast fyrir alla hópa. Unnið hafi verið að því að gera sýningar aðgengilega fyrir t.d. einhverft fólk og fólk með ADHD, settir hafi verið upp tónmöskvar og gerðar sjónlýsingar á myndum.
„Það er okkar hagur að sem flestir komi í þetta hús og líði eins og þeir séu velkomnir, að það sé gert ráð fyrir þeim.“