Skip to main content
AðgengiFrétt

Aðgengi að Menningarnótt

Menningarnótt verður haldin hátíðleg í Reykjavík á laugardag, 24. ágúst. Hér að neðan má finna samantekt Reykjavíkurborgar um aðgengi að hátíðinni.

Aðgengi inn á hátíðarsvæði

Hluti miðborgarinnar verður lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða litlar sem engar undantekningar gefnar á því.  En leitast er til þess eftir bestu getu að tryggja aðgengi allra að hátíðarsvæðinu.

Bílastæði fyrir fatlað fólk

Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Fyrir framan Skúlagötu 6, bílastæðin verða eingöngu verður nýtt undir bílastæði fyrir P merkta bíla.
  • Við Tækniskólann, ákveðið svæði sérmerkt
  • Í eftirfarandi bílastæðahúsum eru sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk
    • Ráðhúsið – opið frá 7:00 – 11:00 og 16:00 – 24:00. Aðgengi um Tjarnargötu
    • Vesturgötu – opið frá 07:00 -24:00. Aðgengi frá Vesturgötu
    • Vitatorgi – opið frá 07:00 – 24:00. Aðgengi frá Hverfisgötu.
    • Stjörnuporti – opið frá kl. 15:00 – 24:00
    • Hörpu – aðgengi frá kl. 13.00 – 21:00, eftir kl. 21. er útakstur um Geirsgötu.

Pant akstursþjónusta fatlaðs fólks

Akstur er frá kl. 07:30 – 01:00
Akstri lýkur kl. 01:00

Þjónustuver Pant er í síma 540 – 2727

Panta má akstur í gegnum www.pant.is

Almennur opnunartími á laugardögum er kl. 10:00 – 14:00
Fyrir kl. 10:00 og eftir kl. 14:00 er aðeins hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.

Hægt er að bóka ferð með tveggja tíma fyrirvara á Menningarnótt eins og vani er.

Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með fyrirvara til að auðvelda skipulagningu akstursins.

Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:
Skólavörðuholtið – bílastæði við Hallgrímskirkju
N1 Hringbraut – bílastæði við N1
Túngata – bílastæði á horni við Suðurgötu
Sjávarútvegsráðuneytið – bílastæði á Skúlagötu 6
EKKI er stöðvað við Ráðhúsið

Viðbúið er að einhver seinkunn kunni að vera sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.

Salernisaðstaða

Salerni fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
  • Á Miðbakka
  • Í Hljómskálagarði
  • Á bílastæði við Tækniskólann
  • Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarð)
  • Í Ráðhúsinu – opið til kl. 19.00.
  • Í Hörpu – opið til kl. 22.00.
  • Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til kl. 22.00.

Hjólastólapallar

Hjólastólapallar verða fyrir framan svið á Arnarhóli og í Hljómskálagarði.

Skynrými

Sérstakt skynrými er til staðar fyrir fólk með skynúrvinnsluvanda eða skynsegin fólk. Verður þetta athvarf í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar, Laufásvegi 13.

Dagskrá

Dagskrá Menningarnætur er aðgengileg á vef Menningarnætur www.menningarnott.is, Þar eru viðburðir flokkaðir eftir tíma svo auðvelt er að skipuleggja sig áður en lagt er af stað að heiman með tilliti til bílastæða og hvaða viðburðir vekja athygli.