1961 Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) stofnað af sex félögum fatlaðs fólks.
1961 Skrifstofa ÖBÍ opnuð í húsnæði SÍBS að Bræðraborgarstíg (1. ágúst 1961).
1962 ÖBÍ gerist í fyrsta sinn aðili að erlendum samtökum, NVF, Nordisk Vanförvårdsforening.
1966 Stofnun Hússjóðs Öryrkjabandalagsins (22. febrúar 1966).
1971 Skrifstofa ÖBÍ flytur í Hátún 10.
1971 Tekjutrygging sett í lög – skertist hún ef tekjur maka voru yfir ákveðinni upphæð.
1972 Aðildarfélögin eru orðin átta.
1975 Fyrsti vísir að ferðaþjónustu fatlaðra verður til með VW rúgbrauð bifreið sem var gjöf sænsku systursamtaka ÖBÍ.
1976 Lögfræðingur ráðinn í hlutastarf á skrifstofuna.
1976 Örtækni – Tæknivinnustofa Öryrkjabandalags Íslands tekur til starfa.
1978 Aðildarfélögin eru orðin tíu.
1979 Vinnustofusjóður Öryrkjabandalagsins stofnaður.
1981 Saumastofa sett á laggirnar.
1981 Alþjóðaár fatlaðra.
1983 Skrifstofa ÖBÍ flytur í tengibyggingu á milli Hátúns 10-10b.
1984 Samtök fatlaðs ungs fólks (FUÍ) stofnuð – sú starfsemi lagðist niður í lok 9. áratugarins.
1986 Íslensk getspá tekur til starfa.
1987 Starfsþjálfun fatlaðra tekur formlega til starfa – síðar Hringsjá náms- og starfsendurhæfing.
1987 TMF – Tölvumiðstöð fatlaðra tekur til starfa – frá 2011 TMF – Tölvumiðstöð.
1993 Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkir reglur um jafna þátttöku, sem Ísland undirritar.
1988 Fréttabréf Öryrkjabandalagsins gefið út í fyrsta sinn.
1988 Byrjað að greiða þóknun fyrir setu á stjórnarfundum bandalagsins.
1989 16 aðildarfélög.
1989 Á degi fatlaðra þann 13. október tóku í fyrsta skipti launþegahreyfingar að einhverju ráði þátt í baráttu fatlaðra.
1992 Lög um málefni fatlaðra taka gildi.
1992 Sameinuðu þjóðirnar ákveða að 3. desember skuli vera Alþjóðadagur fatlaðs fólks. Var haldið upp á hann í fyrsta sinn hér á landi þann 3. desember 1993.
1993 Lögum um Almannatryggingar breytt.
1993 Veittur styrkur úr Námssjóði Sigríðar Jónsdóttur í fyrsta sinn.
1999 Alþingi samþykkir að örorkumat skuli einungis byggja á læknisfræðilegum forsendum. Um leið var komið á fót úrskurðarnefnd í ágreiningsmálum hjá Tryggingastofnun ríkisins.
2000 „Öryrkjadómurinn fyrri“ þar sem Hæstiréttur dæmir skerðingu tekjutryggingar frá Tryggingastofnun vegna tekna maka ólögmæta.
2001 Lög sett sem leyfa skerðingu upp að vissu marki og að þær skerðingar skulu gilda afturvirkt.
2002 ÖBÍ ásamt Landssamtökunum Þroskahjálp taka að sér Fullorðinsfræðslu fatlaðra og nafninu breytt í Fjölmennt
2003 Hæstiréttur dæmir ÖBÍ í hag og felldi úr gildi að lögin sem sett voru í kjölfar öryrkjadómsins væru afturvirk.
2004 Aldurstengd örorkuuppbót samþykkt á Alþingi að frumkvæði ÖBÍ, þó ekki eins og bandalagið hafði gert samkomulag um við ráðherra.
2005 Kvennahreyfing ÖBÍ stofnuð á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars.
2005 Nafni Hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands breytt í Brynja – hússjóður Öryrkjabandalagsins.
2007 30 aðildarfélög.
2007 Ísland undirritar Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
2007 Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent í fyrsta sinn, á Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember.
2008 Skerðing á greiðslum frá Tryggingastofnun vegna tekna maka afnumin.
2008 Lög um skóla án aðgreiningar. Varð síðar skóli margbreytileikans.
2011 Lög sett sem staðfesta táknmál sem fyrsta mál þeirra sem þurfa á því að halda.
2011 Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
2014 Skrifstofan flytur í Sigtún eftir að ÖBÍ hafði fest kaup á helmingi hússins.
2015 Fyrstu málefnahópar bandalagsins taka til starfa.
2016 Fullgilding Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
2016 Eftir álit Umboðsmanns Alþingis fellst TR á að leiðrétta útreikning búsetuskerðingar vegna búsetu erlendis.
2016 Hæstiréttur dæmir ólögmætt að neita leigjendum hjá Brynju, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogi og nokkrum öðrum um sérstakar húsnæðisbætur.
2016 Nýtt kerfi húsnæðisstuðnings tekur gildi þar sem m.a. öll sveitarfélög eru skuldbundin til að veita tekjulágum sérstakan húsnæðisstuðning.
2018 Réttur til Notendastýrðar persónulegrar aðstoðar – NPA – lögfestur með nýjum lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
2020 Skrifað undir samstarfsyfirlýsingu við fjögur stór samtök launafólks um bætt lífskjör
2021 Viðmiðunaraldur barna fatlaðra foreldra sem búa heima og stunda nám hækkaður úr 20 í 25 ár. Foreldrar halda heimilisuppbótiinni frá TR
2021 Dómur fellur um að ekki sé heimild í lögum að binda rétt fatlaðs fólks á NPA við mótframlag úr ríkissjóði.
2022 Hæstiréttur dæmir að ekki megi skerða sérstaka framfærsluuppbót frá TR vegna búsetu erlendis.
2022 41 aðildarfélag.
2022 Fjórðungshlutur keyptur í Sigtúni 42, þannig að bandalagið á nú 75% hússins.