![Akureyri Ráðherra heldur erindi á samráðsfundi á Akureyri.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2024/03/Akureyri.png)
ÖBÍ réttindasamtök fagna því að Alþingi hafi samþykkt fyrstu landsáætlunina í málefnum fatlaðs fólks á Íslandi.
Áætlunin felur í sér 60 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og er liður í lögfestingu samningsins á Íslandi, sem er löngu tímabær.
Þingsáætlunartillagan, sem var samþykkt fyrir helgi, felur í sér margar góðar og þarfar aðgerðir sem miða að því að bæta lífsgæði fatlaðs fólks.
ÖBÍ réttindasamtök tóku virkan þátt í vinnuhópum sem unnu að gerð áætlunarinnar. Alls unnu 11 vinnuhópar að áætluninni og hagsmunasamtök fatlaðs fólks stýrðu og sátu í öllum þeirra auk fulltrúa sveitarfélaga og stjórnarráðsins. Þá voru samráðsfundnir haldnir um land allt sem fulltrúar ÖBÍ og annarra samtaka sóttu auk ráðherra.