![1. maí réttindaganga ÖBÍ](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/05/2023-05-01-1.-mai-rettindaganga-OBI-3807-4.jpg)
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um verkefnastyrki ÖBÍ réttindasamtaka. ÖBÍ veitir árlega styrki í verkefni sem tengjast hagsmunum fatlaðs fólks og eru í samræmi við markmið og stefnu samtakanna.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2024. Upplýsingar um styrkúthlutun munu liggja fyrir eigi síðar en 1. maí. Nöfn styrkþega eru birt á heimasíðu ÖBÍ þegar úthlutun hefur farið fram.
Fylla má út umsóknareyðublað á hlekknum hér að neðan:
Frekari upplýsingar um reglur um úthlutun og um fyrri úthlutanir má nálgast á hlekknum hér að neðan: