![Strætó-Ferðþjónusta-fatlaðra-2018-MÖ](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/05/Straeto-Ferdthjonusta-fatladra-2018-MO.jpg)
ÖBÍ réttindasamtök lýsa ánægju með álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að Reykjavíkurborg hafi brotið lög með að bjóða ekki afsláttarkort fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks eins og gert er með afsláttarkort í Strætó. Á þetta hafa ÖBÍ réttindasamtök bent og þrýst á úrbætur.
Umboðsmaður beindi því til úrskurðarnefndar velferðarmála að taka aftur upp mál fatlaðs manns sem leitaði til nefndarinnar vegna skorts á afsláttarkortum hjá akstursþjónustu fatlaðra, eins og kemur fram í álitinu. Maðurinn hélt því réttilega fram að hann ætti rétt á afsláttarkorti á sömu kjörum og afsláttarkort í Strætó en þau voru ekki í boði.
Úrskurðarnefndin tók á sínum tíma afstöðu með borginni en umboðsmaður komst að annarri niðurstöðu enda á fatlað fólk ekki að borga meira fyrir ferðaþjónustu en aðrir. ÖBÍ fagnar þessari afstöðu umboðsmanns.