Skip to main content

Um stjórn ÖBÍ og framkvæmdaráð

Stjórn ÖBÍ er skipuð nítján stjórnarmönnum: Formanni, varaformanni, gjaldkera, fimm formönnum fastra málefnahópa og ellefu öðrum stjórnarmönnum.

Stjórn er kosin á aðalfundi úr hópi aðalfundarfulltrúa. Jafnframt skal aðalfundur kjósa þrjá varamenn sem hafa seturétt á stjórnarfundum. Stjórnarmenn sitja í umboði aðalfundar en ekki einstakra aðildarfélaga.

Meirihluti stjórnar skal skipaður fötluðu fólki eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu. Með fötlun er vísað til skilnings Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Formaður og varaformaður skulu vera fatlaðir einstaklingar eða aðstandendur fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.

Stjórn fer með æðsta vald bandalagsins á milli aðalfunda. Meginhlutverk stjórnar er að framfylgja lögum og stefnu bandalagsins. » Fundargerðir stjórnar

Framkvæmdaráð afgreiðir mál milli stjórnarfunda og leggur meiriháttar mál í hendur stjórnar. Þá getur stjórn einnig vísað málum til framkvæmdaráðs til frekari útfærslu og afgreiðslu.

Í ráðinu sitja formaður, varaformaður og gjaldkeri. Jafnframt skal stjórn tilnefna úr sínum röðum tvo aðalmenn og tvo varamenn. Varamenn geta sótt alla fundi framkvæmdaráðs og eiga rétt á öllum fundargögnum.

Stjórn ÖBÍ 2023-2024

  • Formaður: Alma Ýr Ingólfsdóttir – Sjálfsbjörg lsh. (2023-2025)
  • Varaformaður: Bergþór Heimir Þórðarsson – ADHD samtökunum (2022-2024)
  • Gjaldkeri: Jón Heiðar Jónsson – Sjálfsbjörg lsh. (2022-2024)

Formenn málefnahópa til tveggja ára (2023-2025)

  • Bergur Þorri Benjamínsson – Sjálfsbjörg lsh. – aðgengishópur
  • Hrönn Stefánsdóttir – Gigtarfélagi Íslands – atvinnu- og menntahópur
  • María Pétursdóttir – MS félagi Íslands – húsnæðishópur
  • Sif Hauksdóttir – Astma- og ofnæmisfélagi Íslands – barnamálahópur
  • Vilhjálmur Hjálmarsson – ADHD samtökunum – heilbrigðishópur
  • Sigríður Halla Magnúsdóttir – Endómsamtökunum – kjarahópur

Þrír stjórnarmenn (2023-2025)

  • Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir – Sjálfsbjörg lsh.
  • María Magdalena Birgisdóttir Olsen – Gigtarfélagi Íslands
  • Ólafur Jóhann Borgþórsson – Parkinsonsamtökunum

Aðrir stjórnarmenn (2022-2024)

  • Eiður Welding – CP félaginu
  • Fríða Bragadóttir – Samtökum sykursjúkra
  • Guðni Sigmundsson – Sjálfsbjörg lsh.
  • Guðrún Barbara Tryggvadóttir – Nýrnafélaginu
  • Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín – MS félagi Íslands
  • Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson – Blindrafélaginu
  • Snævar Ívarsson – Félagi lesblindra á Íslandi

Varamenn í stjórn (2022-2024)

  • Erla Hlynsdóttir – Tourette samtökunum
  • Óskar Guðmundsson – Einhverfusamtökunum
  • Halla B. Þorkelsson – Heyrnarhjálp (2023-2024)

Framkvæmdaráð ÖBÍ 2023-2025

  • Formaður: Alma Ýr Ingólfsdóttir – Sjálfsbjörg lsh., formaður
  • Varaformaður: Bergþór Heimir Þórðarsson – ADHD samtökunum
  • Gjaldkeri: Jón Heiðar Jónsson – Sjálfsbjörg lsh.
  • Meðstjórnandi: Fríða Bragadóttir – Samtökum sykursjúkra
  • Meðstjórnandi: Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson – Blindrafélaginu
  • Varamaður: María Magdalena Birgisdóttir Olsen – Gigtarfélagi Íslands
  • Varamaður: Snævar Ívarsson – Félagi lesblindra