Skip to main content

Kvennahreyfing ÖBÍ

... fatlaðar konur og stúlkur verða fyrir fjölþættri mismunun og skal gera ráðstafanir til þess að tryggja að þær fái notið til fulls allra mannréttinda og grundvallarfrelsis til jafns við aðra.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Umræðuvettvangur og baráttutæki

Kvennahreyfing ÖBÍ er umræðuvettvangur og baráttutæki fatlaðra kvenna sem hefur það að markmiði að skapa eitt samfélag fyrir alla, þar sem jafnrétti ræður á öllum sviðum – samfélag þar sem fatlaðar konur hafa tækifæri til þess að þroskast og nýta hæfileika sína.

Hreyfingin er frjáls og óháður vettvangur sem hefur það að markmiði að efla gagnrýna umræðu um málefni fatlaðra kvenna á öllum sviðum þjóðlífsins.

Skipulögð forysta Kvennahreyfingarinnar er í höndum stýrihóps og þar af eru tvær tilnefndar sem talskonur. Einn fulltrúi hreyfingarinnar hefur seturétt á aðalfundi ÖBÍ með málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.

Hlutverk og markmið

  • að nýta styrkleika og reynsluheim fatlaðra kvenna til stuðnings öllum konum og til að eyða fordómum.
  • að stuðla að auknum atvinnutækifærum fatlaðra kvenna. Vera aflvaki nýrra leiða sem geta orðið fötluðum konum til hagsbóta.
  • að vera vettvangur fyrir fatlaðar konur til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og skapa aðstæður til tjáningar og skoðanaskipta meðal fatlaðra kvenna.
  • að stuðla að víðtækri og sýnilegri samstöðu meðal fatlaðra kvenna til að bæta fjárhag sinn, menntun og lífsgæði.
  • að efla samvinnu meðal fatlaðra kvenna inn á við.
  • að fylgjast með rannsóknum, íslenskum sem erlendum og vera tengiliður milli rannsakenda og Öryrkjabandalagsins.

Kvennahreyfingin er með hóp á Facebook.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, sendu okkur línu.

Stýrihópur Kvennahreyfingar ÖBÍ

Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir – talskona
Helga Magnúsdóttir
Jenný Pétursdóttir
Karen Anna Erlingsdóttir
Margrét Lilja Arnheiðardóttir
Pála Kristín Bergsveinsdóttir
Salóme Mist Kristjánsdóttir
Sóley Björk Axelsdóttir
Þorbera Fjölnisdóttir
Starfsmaður: Kristín Margrét Bjarnadóttir