Öryrkjabandalag Íslands, ásamt Blindrafélaginu, Verkís hf. og Átaki – félagi fólks með þroskahömlun, býður til málþings um aðferðarfræði algildrar hönnunar. Málþingið er haldið í samvinnu við Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðina.
Tími: föstudagurinn 10. mars, kl. 9-12:30
Staður: Grand hótel
Skráning:www.obi.is
Það skiptir alla máli að gengið sé út frá aðferðafræði algildrar hönnunar við framkvæmdir í samfélaginu. Aðgengi er mikilvægt öllum og ótækt annað en að allar leiðir séu öllum greiðar.
Á málþinginu verður fjallað um aðgengismál utandyra, innan bæjarfélaga og á ferðamannastöðum. Hvar erum við stödd í dag og hvert stefnum við?
Áhersla verður lögð á staðla og reglugerðarumhverfi á Íslandi og það borið saman við önnur ríki á Norðurlöndum. Kynntar verða niðurstöður rannsóknarverkefnis um þetta efni sem unnið var með stuðningi Verkís og Vegagerðarinnar.
Bent verður á leiðir til að hanna götur og torg út frá algildri hönnun með hliðsjón af þörfum fatlaðs fólks. Kynntar verða nýjar leiðbeiningar sem ÖBÍ gefur út.
Brugðið verður ljósi á stöðu aðgengismála á ferðamannastöðum á Íslandi. Sagt verður frá niðurstöðum úr ferð aðgengishóps Átaks – félags fólks með þroskahömlun, sem birtar voru í nýlegri skýrslu.
Fulltrúar frá Mannvirkjastofnun og Ferðamálastofu halda einnig erindi á málþinginu.
Málþingið er ókeypis og öllum opið. Boðið verður upp á veitingar í hádeginu.
Dagskrá málþingsins verður kynnt síðar.
Skráning hér
Rit- og táknmálstúlkun er í boði – óska þarf eftir túlkun við skráningu á málþingið.